Margir hafa velt fyrir sér hvernig standi á því að oftast nær er vænlegra að kaupa flug bæði fram og aftur með Icelandair en að kaupa flug aðeins aðra leiðina. Nú loks er skýringin ljós eða þannig.

Svarið við þessari lífsgátu samkvæmt fésbókarvef Icelandair er :

icequ

Samkvæmt skilningi Fararheill merkir þetta að flug aðra leið verður að bóka með allavega 25 daga fyrirvara til að njóta lægri fargjalda. Það er eðlilegt miðað við það viðskiptamódel sem Icelandair keyrir; því nær sem flug er því dýrara er það.

En þetta er ekki alls kostar rétt heldur hjá Icelandair því auðvelt er að ganga úr skugga um málið. Við könnuðum verð á flugi annars vegar aðra leið frá Köben til Keflavíkur í byrjun apríl, 80 dögum fyrir flug, og hins vegar báðar leiðir og þar er einnig verðmunur eins og sjá má hér að neðan. Fleira hangir því á spýtu en hér er gefið upp og kannski er flugfélagið að veðja á að manneskja sem aðeins þarf að komast aðra leið kaupi báðar leiðir sökum lægra verðs, sleppi svo seinna fluginu svo hægt sé að selja sama sæti tvívegis. Annað eins þekkist víða hjá stærri flugfélögum erlendis.

icea

icea2