Fyrr í dag mælti Fararheill með flugtilboði Vitaferða til Alicante þar sem önnur leiðin var boðin á 19.900 krónur á kjaft. Nú býður Wow Air enn betur. Far aðra leiðina á 17.900 og það fargjald í boði allan september og október.
Samkeppnin er yndisleg og tilboð Wow Air betra í alla staði. Ekki er verðið aðeins betra heldur og er það ekki bundið einni einustu brottför eins og Vita býður.
Aldrei þessu vant er ekki tiltekið að um takmarkaðan sætafjölda eða dagsetningar sé að ræða og er það til mikillar eftirbreytni. Þetta þýðir fyrir okkur almúgann að nú komumst við í ylvolgt Miðjarðarhafið fyrir rétt rúmar 70 þúsund krónur og það tveir saman. Það gæti verið töluvert verra en það…
Heimasíða Wow Air hér en tilboð þeirra gildir aðeins til miðnættis í kvöld.






