Þeir síðustu verða fyrstir segir máltækið og má til sanns vegar færa fyrir alla þá sem enn hafa ekki hafið eða klárað allt sitt sumarfrí. Þeir gætu nú skroppið með litlum fyrirvara erlendis á prýðisgóðum kjörum.
Tvö slík skynditilboð eru auglýst í dag.
Annars vegar er um að ræða svokallað 2-fyrir-1 tilboð Heimsferða til Tyrklands. Þar er hitastigið enn kringum 40 gráðurnar sem er freistandi nú þegar íslenska hitabylgjan er liðin undir lok. Tilboðið er tvenns konar. Flugsæti eingöngu á 47.500 krónur til Bodrum í ellefu daga eða flug og gisting með hálfu fæði fyrir 65.900 krónur á mann miðað við tvo saman. Sjá nánar á heimasíðu Heimsferða hér en hér verður að hugsa hratt því brottför er þann 24. ágúst.
Hins vegar auglýsir Vita ferðir flugsæti til Alicante á Spáni þann 29.ágúst á 19.900 krónur á mann. Það er skrambi gott verð og eins er hitinn í Alicante við hæfi allra sem á annað borð vilja brúnku á kropp. Heimasíða Vita hér.







