Tíðindi

Óskýrð röskun hjá Icelandair

  20/08/2012febrúar 4th, 2014No Comments

Þrátt fyrir að Icelandair gefi sig út fyrir að veita eins góðar upplýsingar vegna tafa, seinkana eða aflýsinga véla þeirra og framast er kostur er hvergi neitt að finna um ástæður þess að tveimur flugum félagsins til og frá Kaupmannahöfn í dag hefur verið aflýst.

Segir á vef flugfélagsins: Aflýst:FI-212 og FI-213 til og frá Kaupmannahöfn 20 ágúst. Síðast uppfært: 20.08.2012 10:05 GMT. Farþegar eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við þjónustuver Icelandair fyrir frekari upplýsingar í síma 5050100.

Þar sem aflýsing flugs er ansi alvarlegt mál og fjarri því daglegt brauð væri einhvern veginn eðlilegt að veita nánari upplýsingar um ástæður þessa án þess að farþegar eða aðstandendur farþega þurfi að spandera í símtal.

Icelandair gæti þarna sparað fólki tíma, fyrirhöfn og peninga líka með nákvæmari upplýsingagjöf.

Eins og segir á fésbókarvef flugfélagsins þar sem einn farþegi kvartar yfir dapri upplýsingagjöf:

Við þökkum þér kærlega fyrir þessar ábendingar. Það er alltaf erfitt þegar við neyðumst til þess að seinka og/eða fella niður flug og við erum alltaf að leitast við að auðvelda farþegum okkar lífið í kringumstæðum sem þessum.

Ritstjórn beinir þeim tilmælum til flugfélagsins að hætta að „leitast við“ og bara auðvelda. Þetta er ekki eldflaugavísindi.