Neytendastofa hyggst á haustmánuðum kanna hvort tilboð þau er flugfélögin og ferðaskrifstofurnar auglýsa séu í raun og veru í boði og leita leiða til að koma í veg fyrir að fyrirtækin geti beitt blekkingum eins og þeim er í lófa lagið í dag.

Hversu mörg sæti eru í boði í tilboðsferðum ferðasala hérlendis? Þær upplýsingar liggja ekki á lausu
Þetta staðfestir Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri neytendaréttarsviðs Neytendastofu, við Fararheill.
Nokkrum sinnum hefur Fararheill bent á bent á að vafi leiki á að tilboð sem reglulega eru auglýst séu sannarlega í boði. Í öllu falli leikur á því töluverður vafi og eins og flugfélögin og ferðaskrifstofurnar auglýsa er engin lifandi leið að komast að hinu sanna í málinu.
Staðfestir Þórunn einnig að nokkuð sé um að kvartanir hafi borist Neytendastofu undanfarin misseri vegna þessa sama frá einstaklingum og er ritstjórn Fararheill því ekki ein um að grunsemdir sínar.
Hyggst stofnunin, sem ber að gæta hags neytenda í landinu, taka þessi mál til meðferðar innan tíðar en óvíst er til hvaða aðgerða stofnunin getur gripið á þessari stundu.
Eins og staðan er og hefur verið auglýsa ferðasalar yfirleitt takmarkaðan sætafjölda samhliða ákveðnum tilboðum sínum. Enginn er nokkru nær um hvort þessi „takmarkaði“ sætafjöldi takmarkast við eitt sæti eða jafnvel ekkert sæti. Engin leið er að komast til botns í því fyrir neytendur.
Þetta er á skjön við velflest önnur viðskipti og ætti að mati ritstjórnar Fararheill að skylda aðila er auglýsa takmarkað sætaframboð á tilboðsverði að gefa upp fjölda sæta í boði á tilboðsverði hverju sinni.






