Þó fregnir af Ólympíuleikunum tröllríði nú öllu eru fleiri viðburðir í Bretlandi sem vert er að gefa gætur og jafnvel sækja ef seðill er í vasa og eitthvað sumarfrí eftir. Það er hin stórmerkilega Edinborgarhátíð.
Hún hófst þann 3. ágúst og stendur sleitulaust til 27. ágúst og sennilega þurfa allir að vera í sama formi og Annie Mist ætli þeir sér að sjá þó ekki sé nema brot af því sem í boði er hvern einasta dag hátíðarinnar. Hvorki fleiri né færri en rúmlega 2.700 uppákomur og sýningar eru í boði eða rösklega 117 hvern einasta dag.
Þá er alveg ótalinn tíminn sem farið getur í að rölta um borgina sem er ein sú fallegasta í Skotlandi og margt að vitna þar eins og sjá má á vegvísi Fararheill hér.
Enginn skal óttast að finna ekki viðburði við hæfi hvaða daga sem dvalist er í Edinborg. Fyrir utan hefðbundin söfn og sjónarspil eru götulistamenn víða, áhugamannaleikhúsin skipta hundruðum sem sýna þessa daga og enginn skortur er á viðburðum sem ekkert kosta. Þetta er menningarhátíð par exellans eins og þar stendur.
Sjá má alla dagskrá hátíðarinnar þetta árið hér. Iceland Express flýgur beint til Edinborgar og nokkuð er til af lausum sætum þegar þetta er skrifað jafnvel þó fargjaldið sé vel smurt. Finnur ritstjórn Fararheill ekkert billegra aðra leiðina en á 25 þúsund krónur með sköttum og gjöldum en þá ber að hafa í huga að nóg er eftir af hátíðarhöldum og hver veit nema Iceland Express rúlli út tilboði einhvern næstu dagana. Þá flýgur Icelandair til Glasgow og þaðan er ekkert hræðilega langt yfir til Edinborgar.






