Tíðindi

Draugaborgin London

  04/08/2012desember 16th, 2013No Comments

Hvern hefði grunað að sjaldan eða aldrei yrði jafn auðvelt og þægilegt að upplifa lystisemdir London en yfir sjálfa Ólympíuleikanna? Það er engu að síður staðreynd og mælist aðsókn að helstu og bestu söfnum borgarinnar 30 prósentum minni en í meðalári eftir að Ólympíuleikarnir hófust.

Hin tómlega London sjaldan eða aldrei verið eins yndisleg heimsóknar og núna

Fyrir utan svekkelsið sem það hlýtur að valda ráðamönnum þar í landi sem veðjað hafa milljörðum á milljarða ofan á Ólympíuleika í þeirri von að auka ferðamannastraum eru þetta úrvalsfréttir fyrir ferðafólk. Engar raðir, ekkert stress, nóg af sætum í lestum og strætisvögnum og sum söfn íhuga að lækka aðgangseyri fljótlega ef ekki rætist úr.

Segja má að London eftir að Ólympíuleikarnir hófust sé á svipuðu róli og Reykjavík yfir verslunarmannahelgina. Um eða yfir helmingur lætur sig hverfa annað og borgin fær í einni svipan yfir sig áru rólegheita án þess þó að vera steindauð.

Segir í breska blaðinu Guardian og þykir ennfremur til marks um rólegheitin í miðborg London að viðskipti séu rétt rúmur helmingur þess sem eðlilegt sé í ágústmánuði hjá ís- og pylsugötusölum. Sömu sögu er að segja hjá almennum veitingastöðum. Viðskiptin eru um 40 prósent minni en í ágúst í fyrra.

Aðsókn í Lundúnaturn, Tower of London, hefur ekki verið svo lítil yfir sumartíma í tólf ár og úrvalssöfn á borð við Breska safnið, British Museum, og Þjóðarlistasafnið, National Gallery, trekkja að 35 prósent færri nú en fyrir ári.

Þetta er sérdeilis góður tími til að heimsækja London.