Tíðindi

Ferðamannabann vegna indverska tígursins

  04/08/2012No Comments

Allnokkur fjöldi ferðafólks til Indlands kemur þangað gagngert til að komast í nánd við hinn eiturfallega indverska tígur en á Indlandi búa síðustu frjálsu dýrin af þessari tegund sem talin eru vera alls 1.706 í heildina.

Ferðamannabann á verndarsvæðum indverska tígursins sem er í mikilli útrýmingarhættu

Nú hafa stjórnvöld í landinu bannað tímabundið slíka ferðamennsku sökum þess að ýmislegt bendir til að ferðamenn og eilíft áreiti kringum dýrin hafi neikvæð áhrif og fækki þeim enn hraðar en veiðiþjófar hafa hingað til gert.

Verða héraðsstjórnir í þeim héruðum þar sem tígurinn er að finna sektaðar um heilar 26 þúsund krónur brjóti þau bannið sem er talið líklegt að verði enda skiptir gjaldmiðill ferðamanna töluverðu máli í kistum sveitarstjórnarmanna í landinu.

Þó sektin sé hlægileg í meira lagi er óskandi að banninu verði framfylgt. Tígrunum indversku hefur á rétt tæpum hundrað árum fækkað um 99 þúsund dýr.

Haldi fram sem horfi verður tígurinn aðeins sjáanlegur í búrum dýragarða eftir tíu til fimmtán ár eða svo.