Tíðindi

Húrrahróp fyrir Heimsferðum

  03/08/2012No Comments

Það er ekki á hverjum degi sem Íslendingum býðst að taka hele familien með sér til Alicante á Spáni og og heim aftur og punga einungis út aðeins rúmum 68 þúsund krónum. En það býður ferðaskrifstofan Heimsferðir þessa stundina.

Tilboð Heimsferða til Alicante þann 14. ágúst er með þeim betri sem ritstjórn Fararheill hefur séð

Að mati ritstjórnar Fararheill hefur sú ferðaskrifstofa jafnan boðið vel og er ein af örfáum íslenskum ferðaskrifstofum sem nánast alltaf býður einhver sértilboð á kostakjörum á vef sínum. Oftar en ekki er þó fyrirvarinn í allra billegustu ferðirnar vart meira en einn til tveir sólarhringar og það hefur Fararheill gagnrýnt oftar en einu sinni.

Nú horfir svo við að hafi menn hug að taka maka sinn og tvö börn til að busla eilítið í Miðjarðarhafinu áður en sumri lýkur er hægt að gera það þann 14. ágúst fyrir 68.800 krónur alls. Er þar aðeins um flug að ræða en fjandakornið ef það er samt ekki æði safaríkt tilboð.

Með hótelleitarvél finnast ýmis konar gistimöguleikar á verði allt niður í þrjú þúsund krónur og á flestum spænskum ströndum er auðvelt að leigja sér einbýli sé sá gállinn á fólki.

Umrætt tilboð nær til flugs fyrir fullorðinn á 14.900 krónur en lægra fer það ekki alla leið til Alicante og í þokkabót fara börnin tvö frítt með. Einungis þarf að greiða flugvallargjöld fyrir þau.

Drífa sig! Þú átt það víst skilið

Heimasíða Heimsferða hér.