Tíðindi

Óttast eldgos á Kanarí

  28/09/2011desember 5th, 2014No Comments

Spænsk yfirvöld hafa látið flytja hluta íbúa á eynni Hierro á brott þar sem óttast er að eldgos sé um það bil að brjótast út. Hefur skjálftavirkni á svæðinu farið upp fyrir öll eðlileg mörk síðasta sólarhringinn.

Hierro þekkja sennilega ekki margir en eyjan sú er sú minnsta af Kanaríeyjunum og sú eina þar sem fjöldatúrismi er ekki meginatvinnuvegur heimamanna.

Kanaríeyjurnar allar eru meira og minna á virku eldfjallasvæði og skjálftar á svæðinu eru nokkuð algengir. Ekki eru nema þrír mánuðir síðan yfirvöld á Hierro hófu brottflutning fólks þaðan þegar sams konar óvenjuleg skjálftavirkni varð var í lok júlí. Urðu þá 340 skjálftar á þriggja daga tímabili.

Gos á Hierro mun hafa áhrif á ferðaþjónustu á öðrum eyjum Kanarí verði það nógu stórt og vindáttir þannig að það blási yfir aðrar eyjur en Hierro er suðvestur af Tenerife og Gran Canarias sem líklegast velflestir Íslendingar þekkja mætavel.

Ágætt er að hafa í huga að gera varaáætlun ef gos hefst í Hierro og fólk á farmiða næstu dagana til Kanaríeyja.