Hvernig stendur á því að ein einasta samloka sem samanstendur af tveimur brauðsneiðum með ódýru áleggi á milli kostar kringum 700 krónur á öllum þremur veitingastöðunum í Leifsstöð?
Að þessu spyrja sig margir og hefur Fararheill.is fengið staðfest hjá starfsfólki IGS, Nord og Kaffitárs, sem reka þá þrjá staði sem reknir eru í brottfararsal Leifsstöðvar að daglega blöskri fólki kostnaðurinn við að fá sér snarl í Leifsstöð. Ekki síst setja margir spurningamerki við gríðarlega álagningu á stað sem auglýsir sig sem tollfrjálsan og þó gera megi athugasemdir við vöruverð almennt í Leifsstöð er kostnaður við snarlið úr öllum tengslum við almennt verðlag í landinu.
Sams konar samlokur og kosta 700 krónur í Leifsstöð fást alveg niður í 200 krónur í lágvöruverðsverslunum og ekki eru gæðin betri. Þarf enginn að hafa klárað lágmarks prósentureikning til að sjá að verðmunur þarna nemur fleiri hundruð prósentum.
Er þá óminnst á verðlag á öðru á veitingastöðunum í flugstöðinni sem er í takti við álagninguna á samlokum.






