Tíðindi

Banastunga nautaats í Katalóníu

  27/09/2011mars 2nd, 2015No Comments

Punktur yfir strikið í Katalóníu. Hafi einhver Íslendingur áhuga að sjá alvöru spænskt nautaat í framtíðinni verður sá hinn sami að taka strikið annað en til þess ágæta héraðs.

Heimastjórnin í Katalóníu, sem hefur verulegt vald frá stjórnvöldum í Madríd, ákvað fyrir ári síðan að leggja nautaatið af í héraðinu og er það hið fyrsta sem það gerir á Spáni. Ástæðan einfaldlega sú að fleiri eru á móti slíku en með enda nýtur nautaat alls staðar á Spáni minni hylli ár frá ári.

Sá sem fylgst hefur með þeim viðburði í sjónvarpi eða í stúku ætti að vera nokkru nær um að nautaatið er alveg laust við að vera mjög sanngjarnt gagnvart nautinu og sú skoðun hefur skotið rótum víða hjá unga fólkinu í landinu.

Lauk þannig stórum kafla í spænskri og katalónskri sögu um helgina þegar allra síðasta nautaatið fór fram í Barcelónu og var mikið um það fjallað í öllum spænskum fjölmiðlum. Sitt sýnist hverjum en ljóst má vera að nautaat per se er á undanhaldi hjá unga fólkinu sem er meðvitað um dýravernd en minna hjá hinum eldri sem alist hafa upp við slíkt.

Fyrir þá sem ekki geta heimsótt Spán án þess að vitna eins og eitt nautaat þá er Sevilla helsta vígið auk fjölmargra smærri bæja í Andalúsíu og reyndar í Kastilíu og Kastilíu og León líka.

Borgaryfirvöld í Barcelóna og annars staðar í Katalóníu þar sem nautahring er að finna leita nú leiða til að nýta mannvirkin á annan hátt. Þangað til geta ferðamenn í fyrsta sinn fengið að labba um í alvöru nautahring og jafnvel reyna sig gegn kálfum á stöku stöðum.