Ein skemmtilegasta hátíð heims, Októberfest í Munchen, hófst um síðustu helgi en þetta mun vera í 178 skipti sem hátíðin atarna er haldin.
Ekki er gefið að sækja hátíðina heim nema vellauðugur sé eða eiga vini eða ættingja á svæðinu sem reiðubúnir eru að henda yfir fólk húsaskjóli meðan á hátíðinni stendur.
Samkvæmt úttekt ritstjórnar Fararheill.is á kostnaði á hótelgistingu dytti einhverjum í hug að eyða nokkrum næstu dögum í bæversku höfuðborginni finnur hótelvefurinn HotelsCombined ekkert ódýrara en á 18.183 krónur nóttina.
Það kann að hljóma alveg bærilegt en þau hótel sem þann prís bjóða eru líka í fimm til tíu kílómetra fjarlægð frá veitingasvæðinu sem Októberfest er kennd við. Þau eru því í raun útilokað ætli menn sér að njóta hátíðarinnar með tilheyrandi bjórdrykkju og bratwurstáti fram eftir kvöldum.
Hótel í göngufæri frá hátíðinni virðast taka milli 23 og 36 þúsund krónur fyrir nóttina og auðvitað er hægt að gista á hinu fræga Kempinski hóteli eina nótt fyrir 1,8 milljón króna.
En þá er ekki öll sagan sögð því aðalatriði Októberfest er að sjálfsögðu bjórinn. Og hálfur lítrinn af honum á hátíðarsvæðinu kostar, haldið ykkur fast, litlar 1.430 krónur. Stífir þjórarar maxa því öll kreditkort á nokkrum sólarhringum miðað við íslensk meðallaun.
Allt um hátíðina þetta árið á opinberri heimasíðu hennar hér.






