Tíðindi

70% tafist fjórar stundir eða lengur

  27/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Svo virðist vera sem stór meirihluti íslenskra flugfarþega hafi lent í löngum og leiðinlegum töfum á ferðum sínum ef marka má nýjustu vefkönnun Fararheill. Heil 69 prósent svarenda segjast hafa lent í lengri töf en sem nam fjórum klukkustundum.

Er það ótrúlega há prósenta því tafir umfram fjórar stundir teljast til alvarlegri tafa samkvæmt kokkabókum í fluginu en með tilliti til verulega slakrar frammistöðu annars af tveimur helstu flugfélögum sem héðan fljúga er þetta kannski eðlilegur fjöldi.

Átján prósent þátttakenda höfðu upplifað tafir sem námu frá tveimur stundum og upp í fjórar stundir, ellefu prósent höfðu þurft að bíða í klukkustund eða lengur og einungis tvö prósent svarenda hafa aldrei upplifað neinar alvarlegar tafir.

Samkvæmt reglum Evrópusambandsins sem Ísland er aðili að skal flugrekandi bjóða máltíðir, hressingu og hótelgistingu ef svo ber undir verði farþegar fyrir töfum lengur en þrjár klukkustundir í millilandaflugi sem er allt að 3.500 kílómetra langt. Það á við um velflestar ferðir til Evrópu.

Sömu réttindi taka gildi við fjögurra klukkustunda tafir ferðalanga á lengri leiðum en það en það gildir um flest flug til Bandaríkjanna svo dæmi sé tekið.

Vefkönnun Fararheill er á engan hátt vísindaleg en gefur ákveðnar vísbendingar um stöðu mála. 198 einstaklingar gáfu sér tíma til að svara að þessu sinni og kann ritstjórn þeim bestu þakkir fyrir.