Öll vitleysan er ekki eins og sérstaklega ekki í tilfelli flugfélagsins Iceland Express. Fregnir um tafir, seinkanir og hörmulega þjónustu er eitt en þegar farþegum er stefnt út á erlendan flugvöll sem búið er að loka og fólkið sent út á nýjan leik til þess eins að komast að því daginn eftir að það missti af vélinni er allt annað og verra.
Þetta kom fyrir listakonuna Ólöf Erlu Einarsdóttur og fimm aðra Íslendinga í vikunni. Flaug Ólöf til Bretlands þar sem hún tók á móti hönnunarverðlaunum sem hún vann.
Átti Ólöf flug heim með Iceland Express klukkan 22.10 um kvöld og var komin að Gatwick flugvelli 20:45 til að tékka sig inn. Það fékk hún ekki þar sem búið var að loka flugvellinum og sexmenningunum sagt að koma aftur síðar.
Héldu þau á hótel og hugðust reyna aftur morguninn eftir en þegar á flugvöllinn var komið á nýjan leik var þeim sagt að þau hefðu öll misst af vélinni. Hafði hún þá lent vel á eftir áætlun klukkan 23:30 og farið heim til Íslands klukkan 00:30.
Var fólkinu gert að greiða að nýju fyrir að komast með næstu vél sem fór þá um kvöldið og standa ferðalangarnir nú í stappi við Iceland Express að fá endurgreiðslu.
Rúsínan í pylsuendanum að sögn Ólafar, sem var í viðtali í morgunútvarpi Rásar 2, var þegar starfsmaður kom að máli við þau um morguninn. Sagðist sá starfa fyrir Iceland Express en ekki hafa getað aðstoðað þau kvöldið áður þar sem hann var að fagna Feðradeginum í Bretlandi.






