Í gær urðu tímamót í íslenskri flugsögu þegar Noregur og Ísland gengu formlega inn í Opinn himinn, Open skies, samkomulag Bandaríkjanna og Evrópu.
Mögulega mun þetta lítið áhrif hafa beint hérlendis en þó veitir þetta íslenskum flugfélögum tækifæri til sóknar. Samkomulagið þýðir nefninlega að nú er íslenskum flugfélögum heimilt að hefja flug hvar sem er í Bandaríkjunum eða Evrópu. Sömuleiðis mega flugfélög frá þjóðum Evrópu og Bandaríkjunum hefja áætlunarferðir héðan.
Hingað til hefur Icelandair aðeins mátt fljúga frá sínu heimalandi þó annað gildi um Astreus sem flýgur vélum Iceland Express en það fyrirtæki er skráð í Bretlandi.
Vonandi mun þetta auka áhuga erlendra flugfélaga að fljúga hingað eða héðan því það getur aðeins aukið samkeppnina og hún er af hinu góða fyrir neytendur.






