Lægsta verð í boði nú aðra leiðina fyrir einn einstakling með flugfélaginu Primera Air til Alicante á Spáni í sumar fæst á 31.900 krónur sem er rúmlega sextíu prósent hærra verð en auglýst lægsta verð á því flugi hjá félagina. Engu að síður er það verð mun lægra en Wow Air býður sömu leiðina.

Primera Air er danskt flugfélag í eigu Andra Ingólfssonar sem rekur Heimsferðir og nokkrar aðrar ferðaskrifstofur erlendis. Af og til býður flugfélagið tilboðsverð á flugi og skemmst að minnast flugs aðra leið til Osló í vetur sem leið á aðeins 9.900 krónur sætið.

Flugfélagið auglýsir þrjár ferðir frá Keflavík á vef sínum til Alicante, Kaupmannahafnar og Billund. Til Alicante er lægsta verð 19.900 en er í raun 31.900 aðra leið með sköttum, til Billund finnast flug á uppgefnu verði 17.480 krónur en ekki er hægt að bóka flug til Kaupmannahafnar á 19.900 eins og auglýst er og því ekki hægt að ganga úr skugga um að rétt sé.

Þrátt fyrir þetta mun hærri verð er flug með Primera til Alicante töluvert ódýrara en finnst á vef Wow Air í sumar. Þar finnst ódýrast flug á 37.900 krónur aðra leið og vantar þar inn bókunargjald svo raunverð er 38.800 krónur fyrir utan allan farangur. Flest fargjöld Wow eru þó mun dýrari en það.