Veitingastaðurinn Noma í Kaupmannahöfn sem matgæðingar hafa slefað yfir síðustu árin hefur breytt aðeins til og býður nú aðeins einn einasta matseðil en það með einum 20 réttum. Fyrir íslenska krónueigendur kosta herlegheitin nú tæpar 32 þúsund krónur á mann.

Sem hljómar hátt og mikið og víst er að verðin á veitingastaðnum hafa hækkað allverulega á síðustu tveimur árum. En þann tíma hafa líka gestir átt þess kost að kaupa annaðhvort sjö rétta pakka eða tólf rétta pakka en það er einfaldlega ekki í boði lengur.

Verðið er þó í raun og veru ekki svo fráleitt. 20 réttir eru jú 20 réttir og fyrir stað með tvær Michelin stjörnur í þokkabót við að hafa verið valinn tvisvar besti veitingastaður heims er ekki svo vitlaust að snara fram 64 þúsund krónum plús einhverjum þúsundköllum fyrir víni með ef tilefnið er ærið og gott.