Hvað svo sem fólki finnst um Evrópusambandið þá verður ekki tekið af því ágæta fólki sem þar stjórnar að þeim er annt um líf og limi einstaklinga sambandsins. Allavega hvað varðar flugferðir.
Evrópusambandið birtir reglulega lista yfir þau flugfélög sem bönnuð eru í álfunni sökum þess að öryggi flugvéla þeirra flugfélaga er verulega ábótavant. Og víst er traustvekjandi fyrir hefðbundinn almúgamann að vita að eftirlitsmenn ESB eru að sinna öryggiseftirliti af alvöru.
Minna traustvekjandi er að ESB hefur nú í fyrsta sinn aðvarað tvær stórar aðildarþjóðir sínar, Þýskaland og Spán, vegna aukins fjölda athugasemda við vélar flugrekenda í þessum tveimur löndum. Kemur þó ekki fram í tilkynningu vegna þessa um hvaða flugfélög nákvæmlega er að ræða.
En sé fólk á ferð utan Evrópu er ekki fráleitt að skoða listann yfir þau flugfélög sem bönnuð eru í Evrópu. Listinn í heild sinni hér.






