Tíðindi

Svínarí í Leifsstöð

  28/04/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Samkvæmt gjaldskrá langtímastæða við Leifsstöð fyrir síðustu hækkun kostaði það 5.210 krónur að geyma bifreið í stæði í ellefu daga. Hjón sem skruppu utan í ellefu daga yfir páskana þurftu hins vegar að greiða sléttar 8.000 krónur fyrir herlegheitin.

Frá þessu er skýrt á vef Félags íslenskra bifreiðareigenda en einn félagsmaður þess segir farir sínar ekki sléttar af viðskiptum við fyrirtækið Icepark sem rekur bílastæðaþjónustuna við Leifsstöð.

Ástæða þessa munar var að manninum var uppgefið verð daginn áður en veruleg gjaldskrárhækkun kom til sögunnar án þess þó að þess væri getið við einstaklinginn. Ekki er þó við viðkomandi starfsmann að sakast því hækkunin var ekki tilkynnt opinberlega heldur eingöngu uppfærð verð á vef Leifsstöðvar þann 15. apríl.

Þó tæplega þrjú þúsund króna munur sé ekki mikið getur það skipt sköpum hvort fólk kýs að taka rútuna á flugvöllinn eða fer á bílnum og geymir hann á langtímastæði.