Einkafyrirtækið Icepark sem rekur langtímastæðin við Leifsstöð hefur gert sér lítið fyrir og hækkað gjaldskrá sína um tugi prósenta fyrirvaralaust. Er nú tæplega 50 prósentum dýrara að geyma bílinn á bílastæði Leifsstöðvar um tíu daga skeið en þar var fyrir hækkun þann 15. apríl.
Um einkafyrirtæki er að ræða og því í sjálfsvald sett hvaða verð er uppsett fyrir stæðin en vandséð er hvaða kostnaður hefur aukist svo gríðarlega hjá Icepark. Ekki er um neina aukalega þjónustu að ræða sem ekki var áður og fyrirspurn Fararheill leiddi í ljós að starfsmenn þess hafa engar launahækkanir fengið að undanförnu.
Kostar nú hver stakur dagur í langtímastæðunum við Leifsstöð 800 krónur. Vikugeymsla kostar 5.600 krónur og sé bíllinn geymdur yfir tveggja vikna ferð kostar það nú 9.800 krónur.
Tekið skal fram að langtímastæðin við Leifsstöð eru engu að síður töluvert ódýrari en gerist og gengur á erlendum flugvöllum.






