Tíðindi

Borgarar og pylsur á barnamatseðli Icelandair

  26/04/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Flugfélagið Icelandair mætti að ósekju eyða minna fjármagni í miklar auglýsingaherferðir og meira í mat þann er boðið er upp á fyrir börnin í vélum félagsins. Þó vissulega fái börnin, ólíkt þeim fullorðnu, enn frían mat um borð samanstendur matseðillinn af hamborgara og pylsum.

Reiður farþegi sendi Fararheill bréf vegna þessa en sá ferðaðist með lítinn dreng nýlega. Á útleið fékk drengurinn hamborgara og á heimleiðinni eina pylsu.

Fáir hefðu sennilega kvartað árið 1982 yfir slíku góðgæti skrifar farþeginn en nú er árið 2011 og löngu orðið ljóst að pylsur og hamborgarar eru varla merkilegt fæði og alveg laust við nokkra hollustu.

Segir hann vissulega jákvætt að börnin fái þó enn mat um borð en finnst æði merkilegt að í boði sé það sem í daglegu tali er kallað ruslfæði. Icelandair eigi einfaldlega að bjóða betur en svo.