Tíðindi

Neita að upplýsa um uppsagnir flugumferðarstjóra

  22/04/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Ríkisstofnunin Isavia sem hefur yfirumsjón með flugumferðarstjórn á Íslandi neitar alfarið að upplýsa um ástæður uppsagna íslenskra flugumferðarstjóra síðustu árin.

Fór Fararheill.is fram að fá þær upplýsingar sökum þess að bandarísk flugmálayfirvöld hafa að undanförnu rekið nokkra flugumferðarstjóra fyrir að sofna á vöktum sínum en slíkt er verulegt vandamál þar í landi. Reyndar berast nokkuð reglulega fregnir af slíku.

En hér á landi þykir best að halda almenningi í myrkrinu að því er fram kemur í svari upplýsingafulltrúa Isavia sem segir alls óeðlilegt að svara spurningu um hversu margir íslenskir flugumferðarstjórar hafa verið látir taka pokann sinn á síðustu árum og hvers vegna.

Fararheill fór ennfremur fram á sömu upplýsingar bréfleiðis frá Félagi íslenskra flugumferðarstjóra, FÍF, en án árangurs.