Þau eru sniðug flugfélögin. Bjóða mörg hver upp á ódýr fargjöld en gæta þess um leið að afslættir á fargjöldum skili sér eftir öðrum leiðum. Eitt sem mörgum yfirsést og ættu að hafa kyrfilega í huga eru aukagjöld fyrir fleiri en eina tösku og ekki síst gjöldin sem sett eru ofan á séu töskur of þungar.
Svo merkilegt sem það nú er þá getur ein taska sem er þyngri en 23 kíló kostað ferðafólk meira en fargjaldið sjálft sé um tilboðsferð að ræða. Stöku ferðir fást jú á 10 til 15 þúsund en samkvæmt úttekt Fararheill á gjaldi nokkurra flugfélaga vegna yfirvigtar getur eitt einasta kíló einnig kostað tíu þúsund krónur og jafnvel dýrara en það.
Þetta kostar yfirvigtin hjá helstu flugfélögum sem fljúga til og frá Íslandi í sumar sé mið tekið af fargjöldum á almennum farrýmum:
Germanwings: Hámarksþyngd tösku 20 kíló. Aukagjald fyrir töskur frá 20 – 30 kílóum er 6.400 krónur.
Airberlin: Hámarksþyngd tösku 20 kíló. Aukagjald umfram það 4.000 krónur að 32 kílóum.
Icelandair: Hámarksþyngd tösku 23 kíló. Umframgjald 1.400 krónur á kíló umfram það.
SAS: Hámarksþyngd tösku 23 kíló. Umframgjald 800 krónur á kíló að 32 kílóum.
Delta Airlines: Hámarksþyngd tösku 23 kíló. Aukagjald fyrir tösku frá 23 – 32 kílóum er 24.000 krónur.
Air Greenland: Hámarksþyngd tösku 20 kíló. Umframgjald 1.200 krónur á kíló að 32 kílóum.
Lufthansa: Hámarksþyngd tösku 23 kíló. 800 krónu gjald á hvert kíló umfram það.
Atlantic Airways: Hámarksþyngd tösku 20 kíló. Umframgjald á kíló 860 krónur.
Iceland Express: Hámarksþyngd tösku 20 kíló. Umfram það greiðast 7.000 til Evrópu og 10.000 til Bandaríkjanna.






