Árið 2010 var þrælgott í einu tilliti hvað vestræn flugfélög og ferðafólk varðar. Aldrei hafa færri flugslys orðið síðan Alþjóða flugmálastofnunin, IATA, hóf að taka saman tölfræði um flugslys á heimsvísu.
Er þá reyndar aðeins miðað við slys á vélum sem framleiddar eru á vesturlöndum; Boeing, McDonnell Douglas og Airbus, auk smærri véla. Fjöldi slysa í slíkum vélum 2010 samsvara því að eitt einasta slys hafi orðið í 1.6 milljón flugferða.
Hins vegar var árið heilt yfir verra hvað mannslát varðar en árið árið. 2010 létust 786 einstaklingar í 23 alvarlegum flugslysum en árið áður létust 685 í 18 alvarlegum flugslysum.
Tilkynning IATA hér.






