Hvorki fleiri né færri en sextán flugfélög munu fljúga til og frá Íslandi á sumri komanda en aldrei áður hefur samkeppnin á flugleiðum til Íslands verið meiri.
Eru þetta sérdeilis góðar fréttir fyrir íslenska ferðalanga sem hafa um árabil þurft að sætta sig við mun dýrari flugfargjöld en fyrirfinnast annars staðar jafnvel þó samkeppni hér hafi aukist nokkuð með tilkomu Iceland Express.
Sem dæmi má nefna að ekki einn einstaklingur af 68 sem tekið hafa þátt í nýjustu skoðanakönnun á forsíðu Fararheill.is varðandi flugfargjöld hefur kvittað undir að fargjöld íslensku flugfélaganna séu eðlileg.
Þau fimmtán flugfélög sem hingað fljúga munu kannski ekki breyta neinum ósköpum enda ekkert þeirra í raun lágfargjaldaflugfélag á par við Ryanair eða easyJet. Engu að síður má ljóst vera að samkeppnin eykst og ekki veitir af.
Fyrir neðan er listi flugfélaganna sem hingað fljúga og linkur á heimasíður þeirra þar sem finna má sértilboð og upplýsingar um fargjöld.






