Þetta er nú eiginlega ekki boðlegt. Einum og hálfum mánuði eftir að flugfélagið AirBaltic hóf að selja beint flug milli Keflavíkur og Vilníus í Litháen og til baka auðvitað er íslenski flugleitarvefurinn Dohop enn úti á þekju.

Hvar er greddan hjá Dohop?
Við hjá Fararheill spáðum réttilega fyrir um það hér fyrir ári síðan að líkurnar á að flugleitarvefurinn Dohop næði aftur gullverðlaunum á World Travel Awards sem besti flugleitarvefurinn væru nánast engar og byggðum það meðal annars á þessu hér. Það gekk svo eftir.
Vefmiðill hvers rekstur gengur út á að finna og útvega besta og eða lægsta flugfargjald til hinna ýmsu áfangastaða heims verður að vera með greddu í pung eða pjöllu tuttugu og fjóra sjö 365 daga ársins. Annars bíða sjö hundruð aðrir aðilar eftir að taka hið eftirsótta sæti.
Ekki virðist lexían hafa komist til skila niður í Nóatún. Rúmlega 50 dögum eftir að Fararheill skýrði frá því að senn yrði beint flug í boði með AirBaltic til Vilníus í Litháen finnur Dohop alls ekki neitt með AirBaltic til Litháen eða til baka. Það besta sem flugleitarvefurinn kemur með við leit er dúllerí með SAS gegnum Köben eða Osló, Lufthansa gegnum Þýskaland eða beint flug með Wow Air.
Sannast hér aftur hið fornkveðna að einungis þeir hörðustu standa í lappirnar allar tólf loturnar. Sannast líka að við leit að lágu verði á flug út í heim eða heim er ekki endilega hægt að taka mark á vef sem listar ekki alla möguleika í boði.







