Fararheill varð þess heiðurs aðnjótandi að heyra auglýsingu frá Dohop á öldum ljósvakans þennan ágæta dag þar sem nánast er fullyrt að hvergi sé betra að bóka hótel um víðan völl.

Hvers vegna ein besta flugleit heims er að þvælast í allt öðru þar sem þeir eru EKKI bestir er algjörlega að taka augun af boltanum.
Það náttúrulega fullyrðing sem stenst enga skoðun eins og úttektir Fararheill hafa ítrekað leitt í ljós og lesendur vorir vita. Dohop, eins og Wow Air og Icelandair og hótelbókanir.is, bjóða viðskiptavinum sínum upp á bókunarvél Booking sem er vissulega stærst í heimi vorum en að þar finnist undantekningarlaust bestu hótel á lægsta verði er tómt bull og tjara og það skulum við sanna hvar og hvenær sem er.
Undarlegt er þó að Dohop sem verðskuldað hefur náð miklum árangri í flugleit skuli ekki einbeita sér að því að verða betri þar. Enn þann dag í dag finnast engin bein flug milli Keflavíkur og Gdansk í Póllandi þrátt fyrir að langt sé síðan Wizz Air tilkynnti um beint flug þarna á milli. Reyndar er áætlunarflug British Airways komið inn í kerfið þegar þetta er skrifað en það tók margar vikur.
Dohop ætti að hætta að öskra sig hása yfir aukaatriðum og einbeita sér að því að verða besta flugleit heims. Aðrir eru miklu betri að finna gistingu á lægsta verði og við getum líka sannað það 🙂







