Ég lifi og þér munuð lifa. Það er ósk allra sem anda draga að hætta því seint og helst aldrei. En fáum verður sú kápan úr klæðunum.

Appið sem varar þig við yfirvofandi hryðjuverkum í Frakklandi. Skjáskot

Appið sem varar þig við yfirvofandi hryðjuverkum í Frakklandi. Skjáskot

Það er samt æði fúlt að deyja fyrir aldur fram. Nei, við skulum umorða þetta: það er megafúlt.

Evrópumótið í knattspyrnu í Frakklandi er æði ljúflegt skotmark hryðjuverkamanna. Þeir misyndismenn sem geta gert Frökkum skráveifu meðan á mótinu stendur og eða jafnvel stoppað það mót njóta umsvifalaust hygli og tíu þúsund meyjar bíða þeirra á himnum.

Frakkarnir vilja meina að þeir hafi fundið mögulega lausn þegar og ef leyniþjónustu landsins grunar að hryðjuverk sé á döfinni. App.

Það er sem sagt búið að framleiða app sem gerir snjallsímanotendum viðvart ef vart verður við hryðjuverk eða sterkar vísbendingar eru um að hryðjuverkamenn séu að láta til skarar skríða á meðan Evrópumótinu stendur. Appið atarna heitir SAIP. Það gefur hljóðlausa viðvörun ef hryðjuverk er yfirvofandi og gefur ráð um viðbrögð ef svo illa skyldi fara.

Sennilega ívið nytsamara app en mörg önnur sem þú hefur halað niður á snjallsímann þinn 😉