Sé einhver þarna úti að velta fyrir sér með hvaða flugfélagi sé hagstæðast að komast til Alicante í september og október þarf sá hinn sami ekki að velkjast í vafa lengur. Báða mánuði er Wow Air að bjóða lægra verð en Primera Air.

Lægra verð til Alicante með Wow Air en Primera Air þessi dægrin.

Lægra verð til Alicante með Wow Air en Primera Air þessi dægrin.

Fararheill kynnti sér verðlagningu á flugi aðra leiðina til Alicante næstu tvo mánuðina hjá þeim tveimur flugfélögum sem þangað fara reglulega. Niðurstöðuna má sjá í töflunni hér að neðan en heilt yfir er Wow Air að bjóða lægra verð.

Munurinn er þó ekki mikill í októbermánuði eða aðeins 2.993 krónur sé meðaltal allan þann mánuð reiknað. Í september munar þó sýnu meira samkvæmt meðaltalinu. Meðalverð Wow Air þann mánuðinn 24.610 krónur aðra leið en 32.280 krónur hjá Primera Air.

Uppgefið verð hjá báðum aðilum miðast að við flug en engan farangur en Primera Air heimtar nú skilding fyrir tösku ólíkt því sem áður var. Þó mega þeir eiga að vera ekki jafn gráðugir og Wow Air með töskugjöld. 23 kílóa taska með í för hjá Primera kostar manninn 3.749 krónur sé bókað á sama tíma og flugið. Léttari taska, 20 kíló, hjá Wow Air kostar hins vegar 4.999 krónur. Munurinn 1.250 krónur per tösku og séu hjón eða par að ferðast og bæði með innritaða tösku er jafn dýrt með Primera Air og Wow Air til Alicante í október heilt yfir.

* Verðathugun gerð kl. 15.00 þann fjórða ágúst 2015 hjá báðum aðilum samtímis. Bókunargjaldi bætt við hjá Wow Air. Hafa skal í huga örar verðbreytingar hjá flugfélögum. Hér er um meðaltal allan mánuðinn að ræða.