Fyrir ári síðan gagnrýndum við svokölluð jólagjafabréf Wow Air harkalega enda alls enginn ávinningur af slíkum bréfum fyrir kaupandann. Forráðamenn hafa lesið þann pistil okkar því þetta hefur verið fært til aðeins betri vegar þetta árið. Engu að síður vantar ægilega mikið upp á að jólagjafabréf Wow Air séu heppileg jólagjöf.

Wow Air hefur smátt og smátt tekið upp allt sem Fararheill hefur bent á síðustu tvo árin. En betur má gera. Mynd Wow Air

Wow Air hefur smátt og smátt tekið upp allt sem Fararheill hefur bent á síðustu tvo árin. En betur má gera. Mynd Wow Air

Fararheill ítrekar reyndar að skilja alls ekki jólagjafabréf eða jólagjafakort og þaðan af síður hvers vegna fólki finnst það góð gjöf til handa vinum eða fjölskyldu. Ábati af slíkum bréfum fyrir þiggjandann er lítill sem enginn, mýmargar takmarkanir á notkun slíkra bréfa, það kemur í veg fyrir að fólk nýti sér allra bestu fargjöld séu þau hjá öðrum fyrirtækjum fyrir utan þá staðreynd að bréfin falla úr gildi eftir tólf mánuði í besta falli. Venjulegir íslenskir peningar, svo ekki sé talað um dollara eða evrur, falla hins vegar ekki úr gildi, gætu hækkað í virði á tólf mánaða tímabili sem gera ferðir ódýrari og þá hægt að nota þar sem best er boðið hverju sinni. Það er ekki alltaf boðið best hjá Wow Air.

Eins og lesa má um hér bauð Wow Air í fyrra aðeins upp á gjafabréf með tilteknum upphæðum sem giltu sem nákvæmlega þær upphæðir í ákveðnar ferðir félagsins. Þetta árið bætir fyrirtækið aðeins um betur og gefur örlítinn bónus ofan á upphæðina sem um ræðir. Þannig fæst tíu þúsund króna gjafabréf fyrir 8.500 krónur núna og svo koll af kolli upp að 42 þúsund krónum sem kaupa 50 þúsund króna gjafabréf.

En þótt þetta ákveðna atriði hafi verið fært til betri vegar er annað í jólagjafabréfum Wow Air sem taka mikla dýfu til hins verra. Helst þá að jólagjafabréf er aðeins hægt að nota á lágannatíma. Það er EKKI hægt að nota jólagjafabréfið til ferða um páskana né í allt sumar og ekki upp í neinar skipulagðar ferðir fyrirtækisins heldur.  Með öðrum orðum dugar gjafabréf Wow Air EKKI þegar fólk langar mest að ferðast. Jóalgjöfin dugar þannig aðeins í 246 daga af 365 á næsta ári. Og þetta fyrirtæki kallar sig „flugfélag fólksins?“

Til samanburðar höfum við margverðlaunað lággjaldaflugfélagið Norwegian sem einnig selur jólagjafakort. Þau kort duga líka í eitt ár en engar takmarkanir eru á notkun þeirra að öðru leyti. Með þeim er hægt að ferðast allt árið á öllum leiðum og jafnframt nota þau upp í skipulagðar ferðir ef svo ber undir. Sama er uppi á teningnum hjá lággjaldaflugfélanginu Ryanair. Jólabréf þeirra má nota til greiðslu á flugi allt árið til allra staða án takmarkana.