Illu heilli hafa innlendar ferðaskrifstofur eyðilagt orðið lúxussigling enda hver einasta ferð þar sem dallur kemur við sögu kölluð því nafni af þeirra hálfu. Ferð með gömlu Akraborginni yfir Faxaflóann í denn hefði flokkast sem lúxussigling.

Skipafélagið Azamara hefur aftur og aftur hlotið verðlaun vestanhafs sem besta skipafélagið í lúxussiglingaflokki. Mynd Azamera

Skipafélagið Azamara hefur aftur og aftur hlotið verðlaun vestanhafs sem besta skipafélagið í lúxussiglingaflokki. Mynd Azamera

Sem er synd þegar kynna á til sögunnar raunverulegar lúxussiglingar. Siglingar um heimsins höf þar sem allt er innifalið, drykkir líka, staðirnir exótískir og framandi, skipin sannarlega glæsileg og þjónusta 150 prósent.

Við ætlum að benda ykkur á tvær slíkar sem sannarlega flokkast undir þetta heiti. Ferðir sem undir venjulegum kringumstæðum ættu að kosta hjónakorn eða par langt yfir eina milljón króna. En þetta er jú Fararheill. Við kynnum þær vegna þess að þær eru þessa stundina á tombóluverði eða á eins miklu tombóluverði og lúxusferð getur orðið.

Annars vegar er um að ræða tólf nátta siglingu meðfram ströndum Argentínu, Úrúgvæ og Brasilíu um borð í skipi skipafélags sem ítrekað hefur fengið stimpilinn besta skipafélagið vestanhafs. Ferðin hefst í Ríó þaðan sem haldið er til Montevideo og áfram til Buenos Aires þar sem fólk getur dundað sér í tvær nætur í þeirri erótísku borg. Þá er farið til baka en áð í Punta del Este áður en förin heldur áfram aftur til Ríó. Gamanið þó ekki búið þá heldur er siglt áfram norður til borgarinnar Buzios sem er þekkt í Brasilíu sem borg hinna auðugu. En bíddu við. Það er eitt enn sem þér finnst ábyggilega gaman að vita. Ferðatíminn stemmir við dagsetningu hins víðfræga Karnival í Ríó og það gefst tækifæri til að taka þátt í þeim geðveiku hátíðarhöldum án þess að borga þúsundfalt verð fyrir gistingu. Fyrir utan að þjórfé er innifalið, áfengir drykkir líka sem og ferðir milli skips og staða þar sem svo ber undir. Æði sniðugt ef þú spyrð okkur. Enn sniðugra að ferðin sjálf kostar í heildina í innriklefa aðeins kringum  966 þúsund* krónur frá Íslandi eða 483 þúsund á kjaft.

Hin lúxussiglingin er ekkert síðri og kannski jafnvel enn yndislegri. Sú tekur átján daga alls og hefst sigling í Dúbai þar sem gist er eina nótt. Þaðan sem siglt er í rólegheitum til Muscat í Óman og áfram gegnum Súez-skurðinn til Haifa í Ísrael. Þá tekur við sigling til tveggja indælla Miðjarðarhafseyja, Limassol á Kýpur og Kas við Tyrkland, áður en siglingunni lýkur í Istanbúl. Að öðru leyti sama fína skipafélag og toppskip, allt innifalið og áfengir drykkir meðtaldir, ferðir til skips og frá og þjórfé innifalið í verðinu. Verð í þessa ferð frá Íslandi 995 þúsund** krónur miðað við tvo í innriklefa. Alls 497 þúsund á mann.

* Ferðin keypt á netinu plús flug með Icelandair til Toronto og heim aftur að ferð lokinni. Allir skattar og gjöld talin með.

** Ferðin keypt á netinu plús flug með Icelandair til Toronto og heim aftur að ferð lokinni. Allir skattar og gjöld talin með.

Allt um fyrri ferðina hér. Allt um þá seinni hér. Hér svo vegvísir um Toronto ef fólk vill lengja aðeins í ferðinni.