Allir þessir sérfræðingar. Eigandinn milljarðamæringur sem hlustar á engan mann en raðar kringum sig fólki sem hefur áratugareynslu í flugheimum. En eins og í bönkunum við Hrunið kemur í ljós að allir þessir sérfræðingar kunna varla að skeina sér.

Í ljós kemur þegar á reynir að ritstjórn Fararheill hafði kórrétt fyrir sér varðandi beint flug til bandarískra krummaskuða. Skjáskot
Nett sorglegt, en kemur ekki á óvart, að margir þessara nýju „megaspennandi” áfangastaða sem Wow Air hefur auglýst grimmt undanfarin misseri virðast alls ekki vera að gera sig. Það jafnvel þó 90 prósent Íslendinga þrái eitthvað annað en rigningu, skúrir og dumbung og séu reiðubúnir að greiða feitt fyrir sól og hita.
Þegar þetta er skrifað má enn finna HELLING af fargjöldum hjá Wow Air til Chicago, Cincinnati, Dallas og Cleveland aðeins þrjár til fjórar vikur fram í tímann á sömu lágu fargjöldum og voru upphaflega auglýst sem lægstu mögulegu fargjöld þegar flugfélagið hóf að selja farmiða í vetur sem leið.



Hjá Wow Air hafa menn þann háttinn á að fyrstu 30 sætin eða svo eru á botnverði og þegar þau eru seld hækka fargjöldin um ákveðnar prósentur fyrir næstu sæti á eftir. Lægstu fargjöld fara þannig úr 12.999 krónum í 18.999 krónur og eftir að 20 sæti þar hafa verið seld hækka næstu sæti á eftir í 28.999 krónur og svo framvegis og svo framvegis.
Það því sáraeinfalt í því ljósi að vita að nýir og spennandi áfangastaðir Wow Air vestanhafs heilla varla Karlakór Fljótsdalshéraðs og hvað þá aðra miðað við bókunarstöðuna nú seint í júlí.
Ef Cinncinnati, Dallas og Cleveland væru virkilega að heilla landann, og eða túr til Evrópu að heilla heimamenn í umræddum borgum, sem þykja allar krummaskuð á bandarískum mælikvarða, væri ekki hægt að negla flug aðra leiðina á sama lágmarksverði og Wow Air auglýsti sem sérstakt kynningarverð þegar þessar nýju flugleiðir voru kynntar. Þá værum við að tala um töluvert hærri verð en við sjáum hér að ofan.
Ekki svo að skilja að áhugi Íslendinga skipti kannski sköpum í þessu. Hugmyndin er jú að fá Kanann til að fljúga til Íslands og helst áfram til Evrópu. En það virðist hafa misheppnast algjörlega miðað við flugfargjöldin.
Sem þýðir enn og aftur 1-0 fyrir Fararheill versus sérfræðinga Wow Air. Við spáðum því nefninlega í vetur að þessar borgir myndu ekki heilla nógu marga til að beint flug borgaði sig. Við ekki sérfræðingar í einu né neinu. En nú virðist óhætt að opna kampavínið…







