Eftir margra ára kvart og kvein frá okkur hér hjá Fararheill kom loks fram risastór bandarískur miðill sem vildi vita hvort herra Mogensen, eigandi Wow Air, ætlaði sér að bæta slælega þjónustu flugfélagsins. Sannarlega, sagði Mogensen. En hefur eitthvað breyst til batnaðar?
Vissulega er aðeins tæpur mánuður síðan stór bandarískur fjölmiðill fjallaði um vægast sagt dapurlega þjónustu Wow Air. Og engum þarf að segja að Bandaríkjamenn láta nánast allt yfir sig ganga í þjónustulegu tilliti áður en þeir hætta að brosa og leita réttar síns. En óhætt er að fullyrða að ef flugfélag ætlaði sér sannarlega að bæta ráð sitt, ætti það að tikka tiltölulega fljótlega. Eins og strax til dæmis.
En hver er raunin. Hefur þjónusta Wow Air batnað snarlega á þeim tæpa mánuði sem liðinn er? Kíkjum á nokkra samfélagsmiðla af handahófi.
Kvörtunum á Twitter ekki beint fækkað neitt sérstaklega sé miðað við daginn í dag eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskotum. Farþegar fá ekki töskur sínar fyrr en eftir dúk og disk, farþegum lofað bótum sem skila sér mögulega mörgum mánuðum síðar ef þær skila sér yfirhöfuð. Farþegar eyða formúgum í símtöl í þjónustuver aðeins til að fá að vita að enginn getur hjálpað…
Amm. Hlutirnir aldeilis breyst til batnaðar hjá Wow Air. EKKI!
Hingað til hefur það tekið Mogensen fimm mínútur að fá einhverju breytt hjá flugfélaginu sínu. En merkilegt nokk, tekur það æði langan tíma að laga þjónustuna. Færa þjónustu á par við það sem eðlilegt þykir.
Hvers vegna skyldi það vera…











