Einhver hefði haldið að fyrirtæki byði þeim bestu kjör er haldið hafa sama fyrirtæki á floti með viðskiptum gegnum þykkt og þunnt um áraraðir. Forráðamenn Icelandair líta öðruvísi á hlutina.

Áfram Ísland auglýsir Icelandair en fimm mínútum síðar fá allir aðrir en Íslendingar miklu betri kjör á flugi. Smekklegt!

Íslenska flugfélagið, að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða landsins, er nú að trekkja þybbna Bandaríkjamenn með súpertilboðum þetta haustið. New York til Keflavíkur og heim aftur niður í 32 þúsund krónur tæpar á létt-farrými (economy light). Undarlegt reyndar að bjóða fólki sem almennt er í yfirvigt upp á léttfarrými en svona eru markaðsmenn sniðugir.

Hreint ekki nóg með það. Sé John eða Jane Doe í New York spennt/-ur fyrir haustferð til Amsterdam í Hollandi með stoppi á Íslandinu góða, býður Icelandair túrinn fram og aftur fyrir heilar 37 þúsund krónur ef bókað er núna. Aldeilis brilljant verð frá NY til Amsterdam. Kaninn þannig í raun aðeins að borga FIMM ÞÚSUND KRÓNUR fyrir flug frá Keflavík til Amsterdam og sömu leið til baka…

Ók, gott og blessað. Ísland er jú ekki eitt allra magnaðasta land í heimi og um að gera að selja ferðir á toppstað á slikk og ingenting. Gallinn bara sá að forráðamönnum þessa flugfélags dettur ekki í hug að bjóða landanum upp á slík súperkjör.

Kíkjum augnablik á flug frá Kef til New York í október af handahófi. Lágmarksverð fram og aftur reynist 48.735 krónur per haus á sardínufarrými með eina handtösku meðferðis.

En kannski er þetta tilviljun. Kíkjum á ódýrasta fargjald Icelandair fyrir einn Íslending fram og aftur til Amsterdam í sama mánuði. Hvað kemur þá í ljós?


Dabbadona. Allra lægsta fargjald Icelandair fram og aftur með aðeins handtösku meðferðis í október kostar Íslendinginn 26.235 krónur.

Ergo: Kaninn flýgur frá New York til Amsterdam með viðkomu á Íslandi á sardínufarrými og sömu leið til baka fyrir rétt tæpar 37 þúsund krónur. Sömu flugferðir fyrir okkur hér á klakanum á sama tímabili kosta manninn að lágmarki 74.970 krónur!!!

Það, gott fólk, þýðir að við hér greiðum 102 prósent hærra verð fyrir sömu flugferðir en flugfélagið okkar býður Kananum.

Allt ótrúlega eðlilegt við þetta, ekki satt?