Sama toppþjónusta hjá Wow Air og við höfum ítrekað fjallað um síðustu árin. Fjölskylda bókar flug saman og þegar í relluna er komið er smábarni komið fyrir fimmtán sætum aftar en móðir og faðir.

Fjögurra ára barn í sæti 29E en foreldrarnir tólf sætaröðum framar. Svona rokkar Wow Air. Mynd Twitter

Enginn hjá Wow Air virðist enn hafa gert sér grein fyrir að það er ólöglegt að skilja að foreldra, forráðamann og börn í flugi.

Þetta tengist því að flugfélagið leyfir nú viðskiptavinum að borga sérstaklega fyrir hin og þessi sætin í öllum flugferðum.

Það svo sem gott og blessað en gefur engan frípassa á að aðskilja smábörn og foreldra þó foreldrarnir kjósi að greiða EKKI fyrir sérsæti. Eðlilega, enda kveða lög landsins á um að foreldrar og börn undir tólf ára aldri SKULI vera saman í flugi hvað sem tautar og raular.

En hjá Wow Air virðast lög og reglur eitthvað ofan á brauð. Um að gera að aðskilja foreldra frá fjögurra ára gömlu barni ef einhver stórvesír er reiðubúinn að borga extra fyrir tiltekið sæti.

Svo er herra Mogensen hissa á slælegu gengi flugfélagsins…