Einhver bjartasti og fallegasti sumardagurinn á suðvesturhluta landsins í allt sumar. En hvorki Icelandair né Wow Air tókst að halda áætlun.

Príma dagur suðvestanlands. Samt feitar tafir hjá innlendum flugfélögum Samsett mynd

Okkur skilst að hópur fólks í ráðuneytum, sem kostuð eru af skattgreiðendum, klóri nú haus til blóðs til að útbúa björgunaráætlun fyrir Icelandair og Wow Air svona ef erlendum ferðamönnum fækkar umtalsvert frá því sem verið hefur.

Amm. Bandaríska bankaheilkennið hefur tekið sér bólfestu í hausum misvitra embættismanna. Þið vitið; of stórir aðilar til að falla. Engu virðist skipta að bæði fyrirtæki eru illa rekin sem skýrir að stórum hluta minnkandi vinsældir og viðskipti. Þau bara samt svo mikilvæg að tugir ríkisstarfsmanna eru all-in að búa í haginn. Ekki slæm staða að vera í.

Þennan fyrsta fallega sumardaginn suðvestanlands sumarið 2018 mætti einhver halda að flug gengi nú eins snurðulaust og sirkussýningar Billy Smart.

En ekki alveg…

Hálftíma tafir á nánast öllum flugferðum Wow Air frá Keflavík þennan daginn. En hvað með lífeyrissjóðsfélagið Icelandair? Stóð það sig eitthvað betur?

Neibbs! Ekki er skárra ástandið hjá Icelandair. Varla rella í loftið á tilsettum tíma.

Kannski ástæða fyrir tiltekna ríkisstarfsmenn að klóra sér frekar í hausnum yfir döprum launakjörum ljósmæðra og ráða bót á en að eyða tíma og takmörkuðum fjármunum í fyrirtæki sem geta ekki einu sinni staðið við tímasetningar á besta mögulega degi…