Ef þú ert eins og við hér á ritstjórn hefur Mexíkóborg heillað þig svo lengi sem elstu menn muna. Og nú kann tíminn að vera kominn. Í ölli falli verður seint ódýrara að heimsækja þessa miklu borg en í haust.

Ein hæsta höfuðborg heims og sökum þunns loftsins er hér töluvert auðvelt að skemmta sér 🙂

Það skýrist af því að bandaríska flugfélagið United er þessi dægrin að auglýsa aldeilis mögnuð tilboð á flugi til og frá Mexíkóborg frá nokkrum borgum í Kanada. Og góðu heilli fyrir okkur mölbúana hér fást líka hreint ágæt fargjöld héðan til nokkurra borga Kanada í haust 🙂

Með United má nú finna flugfargjöld BÁÐAR LEIÐIR frá borgum á borð við Vancouver, Toronto og Montreal allt næsta haust og langt fram í desember niður í 27 þúsund krónur á haus.

Í þokkabót við það finnum við hér strax fín fargjöld Wow Air fram og aftur til Toronto eða Montreal á sama tímabili allt niður í 32 þúsund krónur fram og aftur.

Sem auðvitað merkir að heimsókn til Mexíkóborgar er innan seilingar fyrir áhugasama undir 60 þúsund krónur á kjaft!!!

Víst er haust og vetur kannski ekki allra vænsti tíminn til að heimsækja Mexíkóborg. Það er jú fimbulkuldi þar á bæ og fólk þarf að sætta sig við fimmtán til tuttugu gráðu hita 😉 Svona nokk á pari við frábæran íslenskan sumardag.

Hin hliðin á sama teningi þó sú að þetta er vel utan annatíma, engar raðir á flott söfn eða staði og verðlag í lágmarki fyrir ferðamanninn. Plús auðvitað að við losnum tímabundið við kulda og vosbúð á klakanum…

Tilboð United hér. Kíktu bæði á vef Wow Air og Icelandair áður en þú bókar til Kanada og heim aftur.