Ók, svarið við fyrirsögninni ekki flókið í nokkru tilliti. Það er að segja fyrir lesendur Fararheill. Sá vægast sagt vafasami heiður fellur í skaut Skúla Mogensen og hans fólks hjá hinu íslenska flugfélagi Wow Air.

Léleg þjónusta kemur alltaf í bakið á fyrirtækjum. Skjáskot

Jamm, Wow Air allavega í fyrsta sætinu á einhverjum lista þarna úti. Það gæti glatt milljarðamæringinn Mogensen sem er sífellt í keppni við vin sinn Björgólf Thor um mest og best.

Og hver er svo góðhjartaður að setja Wow Air í fyrsta sæti? Jú, það er ferðavefurinn Airhelp. Sá sérhæfir sig í að aðstoða flugfarþega sem hafa verið sviknir á einhvern hátt um bætur og þjónustu vegna vesens. Fyrirtækið tók saman fjölda kvartana það sem af er árinu 2018 fyrir bandarískan fjölmiðil og illu heilli fyrir orðspor Íslands er það Mogensen sem hefur mest buxurnar á hælunum meðal allra erlendra flugfélaga sem fljúga til Bandaríkjanna.

Endilega lestu þetta aftur: litla Wow Air frá Íslandi er það flugfélag sem flestir Bandaríkjamenn kvarta yfir og vilja bætur fyrir skort á þjónustu og liðsinni.

Príma auglýsing fyrir landið…

Meira hér.