Í Desember hefja fyrstu rellur Wow Air sig til lofts frá Keflavík alla leið til Nýju-Delí á Indlandi og auðvitað til baka sömu leið. Létt skoðun okkar leiðir í ljós að fargjöld íslenska flugfélagsins eru ekkert ýkja samkeppnishæf.

Lægsta verð fram og aftur frá Nýju-Delí til London í desember
Ekki svo að skilja að samkeppni sé milli Indlands og Íslands. Icelandair hyggst reyndar bjóða beint flug þá leiðina líka en varla fyrr en um mitt næsta ár.
Nei, hér erum við að bera saman beint flug frá Nýju-Delí til Íslands versus til Englands ellegar beint til Bandaríkjanna. Það er London sem er gjarnan fyrsta stopp Indverja sem eru á leið áfram til Bandaríkjanna enda ekki svo mikill fjöldi beinna flugferða milli Indlands og Bandaríkjanna
Í desembermánuði er hægt að finna fargjöld frá Nýju-Delí til London og til baka lægst niður í 75 þúsund krónur eins og sjá má hér að ofan. Algengt að finna ferðir milli 80 og 85 þúsund á einstakling. Ofan á það bætast þetta 40 þúsund krónur fyrir flug vestur um haf og til London aftur. Algengt verð því kringum 120 þúsund alls.

Beint flug frá Indlandi til Bandaríkjanna kostar þetta 115-120 þúsund í desember.
Í sama mánuði má líka finna beint flug milli Nýju-Delí og New York í Bandaríkjunum og aftur sömu leið niður í 112 þúsund krónur en algengt að það kosti 115-120 þúsund krónur eða svo.
Ekkert flugfélag þessar leiðir flýgur öðru en breiðþotum. Ein til tvær töskur innifaldar á ódýrasta farrými og öll flugfélögin bjóða mat á leiðinni sem innifalinn er í verðinu. Þá er og afþreyingarkerfi í boði í flestum vélum.

Lægsta fargjald Wow Air frá Indlandi til Bandaríkjanna í desember.
Vissulega býður Wow Air flug frá Nýju-Delí og til undir Wow Basic fargjaldi sem merkir að ekkert er innifalið annað en lítil handtaska. Sem eins og við höfum bent á áður er óvitlaus kostur ef verið er að skottast eina helgi til Dublin. Það hins vegar aldeilis fráleitt að ætla að farþegar í tíu til ellefu klukkustunda flugi hvora leið fyrir sig taki ekki farangur með.
Það er því eðlilegast í þessu tilviki að skoða Wow Plus fargjöld flugfélagsins en þar ein innrituð taska innifalin og handfarangurstaska líka.
Lægsta verð sem við finnum á vef Wow Air í desember fram og aftur? Sextíu og níu þúsund rúpíur per haus sem gerir tæplega 109 þúsund krónur miðað við gengi dagsins.
Wow Air þannig á pari við lægsta verð beinustu leið frá Nýju-Delí til New York en með lakari rellu, þrengri sæti, hvorki matur né vatn í boði nema greitt sé aukalega fyrir og engin er afþreyingin. Æði löng leið án skemmtunar af einhverju tagi ekki satt?
Miðað við ofangreint má ljóst vera að lægstu fargjöld Wow Air eru varla megaspennandi fyrir Indverja í samanburði við flug gegnum London eða þá beinustu leið vestur um haf. Ekki nema auðvitað fyrir þá sem ætla sér sérstaklega að heimsækja Ísland. En það er ekkert „lággjalda” við Indlandsferðir Wow Air.







