Ferðaþjónustuaðilar margir hafa undanfarin misseri gengið fylktu liði í grátkór útvegsmanna sem finnst ætíð hart að sér vegið fyrir að greiða eina krónu til ríkisins fyrir aðgang að dýrustu djásnum þjóðarinnar. En þeir, eins og útvegsmenn, eru jafn ótrúverðugir og talsmenn ísraelskra stjórnvalda.

Á leið frá Indlandi til Íslands og heim aftur? Þá greiðir þú helmingi minna til íslenskra stjórnvalda en þeirra indversku. Skjáskot
Lesið fólk veit sem er að önnur hver grein í Fréttablaðinu og Mogga er væl í ferðaþjónustuaðilum sem harma að ekki er tólf þúsund prósenta vöxtur í ferðaþjónustunni lengur. Vöxturinn aðeins 10 prósent þetta árið.
Þeir kenna um heimtufrekju þjóðgarða, Ísavía og auðvitað ríkinu fyrir að fara offari í skattlagningu á ferðafólk. Engum forsvarsmanni ferðaþjónustufyrirtækja finnst líklegt að ferðafólk forðist landið sökum okurs innlendra ferðaþjónustufyrirtækja. Enginn bendir á að meðalverð fyrir einn ofan í drullupollinn Bláa lónið kostar þessi dægrin 7.800 krónur og er oft hærra töluvert hærra en það. Enginn bendir á að það kostar nú tæpar 7.000 krónur að skottast Gullna hringinn og það í miklum flýti eða express eins og flottir markaðsfræðingar kalla það.

Nýja-Delí á góðum degi.
Okkur datt í hug að setja hlutina aðeins í samhengi þegar kemur að skattheimtu á ferðafólk og völdum til þess borgina Nýju-Delí í þriðja heims ríkinu Indlandi. Hvers vegna Nýju-Delí? Jú, það er samkvæmt öllum stöðlum og mælingum fátækasta borgin í fátækasta landinu sem flogið er beint til héðan frá Íslandi.
Og hvað kemur í ljós ef við BARA kíkjum á skatta og skyldur á hvern ferðamann á flugvellinum einum og sér. Jú, allir sem til Nýju-Delí fara með flugi héðan þurfa að greiða 6.037 krónur til indverskra stjórnvalda fyrir notkun á flugvellinum og að koma inn í landið. Það hljómar nú ekkert ægilegt eða hvað?
Nú skal hafa hugfast að Nýja-Delí er Trabant ferðamennskunnar. Ekki svo að skilja að við séum að gera lítið úr Indlandi eða Indverjum, en raunin er að Nýja-Delí er heilsusamlega baneitruð í samanburði við Keflavík. Hávaði alls staðar öllum stundum, loftmengun á pari við að hafa bílinn í gangi í lokuðum bílskúr og enginn bleiknefji hreyfir rass á götum borgarinnar án þess að njóta miður góðrar athygli götubarna, betlara og klæðskera.

Keflavík á góðum degi. Hreint loft og gleði í lofti líka. En það hræbillegt miðað við mengunarpakkann. Skjáskot
Sex þúsund og þrjátíu og sjö krónur í skatta og skyldur á einhverjum mengaðasta stað jarðar sem sagt.
Víkur þá sögu að Keflavík og Íslandi. Ferrari ferðamennsku á heimsvísu með stórkosteg náttúruundur við hvert fótspor, hreint loft, hreint vatn og almennt indæla heimamenn sem sjaldnast troða þér um tær neins staðar heldur þvert á móti.
Indverji sem plantar rassi í vél þráðbeint til Íslands þarf að greiða svo mikið sem 3.574 krónur í skatt og skyldur við komu og brottför.
Ítrekum upphæðina aðeins fyrir lesblinda: 3.574 krónur í skatt og skyldur á Íslandi fyrir indverskan ferðamann.
Ertu að sjá það sem við sjáum?
Getur verið að eitt allra fallegasta og hreinasta land í heimi, fimm stjörnu áfangastaður í öllu tilliti, sé aðeins að heimta tæplega HELMING ÞESS sem mökkmengað þriðja heims ríki tekur af hverjum túrista? Er þó Nýja-Delí ekki að taka hæstu upphæðina í skatta af borgum landsins. Sá heiður fellur í hlut Mumbai, áður Bombay, sem tekur helmingi hærri skatta af hverjum ferðamanni en Nýja-Delí.
Einmitt það! Það er ekki húrrandi okur ferðaþjónustuaðila sem er að fæla fólk burt frá fimm stjörnu áfangastað heldur nokkrir skitnir hundrað kallar sem ríkið, við fólkið, heimtar af hverjum og einum. Sömu hverjum og einum og gera númer eitt og tvö þar sem þeim sýnist, drepa lömb or ær bænda að gamni sínu, stoppa á miðjum þjóðvegi til að klappa hestum með tilheyrandi hættu, fylla heitar laugar landsins af kúk og viðbjóð og finnst bara gaman að því að spæna niður ósnerta náttúru landsins á tröllajeppum…
Ef allt væri eðlilegt ættu ferðalangar til landsins að greiða að lágmarki HELMINGI meira í skatta og skyldur en þú borgar þegar þú álpast til Nýju-Delí. Því Trabant og Ferrari er ekki það sama…
En engar líkur á því meðan ráðherra ferðamála er nátengd Skúla Mogensen







