Viti menn! Yfirmaður heils sviðs hjá Ísavía segir upp störfum og sjéffinn segist sjálfur ætla að græja hlutina svona þangað til nýr maður er ráðinn.

Forstjóri Ísavía. Sá ekkert að gefa almúganum of miklar upplýsingar…Mynd Isavía
Undarleg frétt þennan daginn í Morgunblaðinu og síðar á vef blaðsins eins og lesa má um hér.
Þar kemur fram að einstaklingur hyggist hætta sem yfirmaður flugvallasviðs Isavía samkvæmt tilkynningu frá sjálfri stofnuninni. Milli lína má þó lesa að viðkomandi aðili sé að hætta vegna þess að á hann var ekkert hlustað og allar ferskar hugmyndir féllu í grýttan jarðveg.
Gott og blessað.
Við þennan fréttaflutning er ýmislegt að athuga.
A) Hvað kemur okkur almennt við starfsmannabreytingar hjá Ísavía? Ekki minnumst við þess að fréttnæmt hafi þótt þó breytingar verði á yfirstjórn ÁTVR eða Árna Jóns sé skipt út fyrir Margréti Hannesar hjá Landmælingum Íslands.
B) Ýjað er að því í tilkynningunni að viðkomandi sé að hætta vegna þess að nýjar hugmyndir eigi ekki hljómgrunn. Var ekki ráð að hringja í viðkomandi og forvitnast um uppsögnina og hans nýju hugmyndir í stað þess að láta lásí fréttatilkynningu duga?
C) Mikill árangur er sagður hafa náðst undir stjórn þess aðila sem nú er að hætta segir í tilkynningunni. Mikill árangur er víðast hvar talinn plús í kladdann í fyrirtækjum. Hvers vegna er maðurinn þá að hætta?
D) Í lok tilkynningarinnar segir orðrétt: „Björn Óli Hauksson [forstjórinn] mun sjá um stjórn sviðsins þar til ráðið hefur verið í starf framkvæmdastjóra flugvallasviðs.” Sem vekur upp spurningar hjá vitibornu fólki ekki satt? Annaðhvort er þetta svið Ísavía algjört djók og engin raunveruleg þörf á yfirlegu yfirmanns. Eða að sviðið er mjög mikilvægt og að forstjóri stofnunarinnar, sem annars eyðir tímanum að klóra sér í pungnum, hefur ívið nógan tíma aflögu til að dekka heilt svið aukalega. Við teljum víst að raunin sé það síðarnefnda. Enda væntanlega enn feitari launatékki fyrir vikið…
Er ekki í alvöru kominn tími til að henda Birni Óla Haukssyni út í hafsauga…







