Einræðisherrann Recep Erdogan í Tyrklandi er alvarlegur vitleysingur. Svona næstum á pari við forseta Bandaríkjanna. En heimskupör Erdogan þýða líka að það hefur ekki verið ódýrara fyrir okkur að dvelja í Tyrklandi um tuttugu ára skeið.

Gnótt skemmtilegra verslunarstaða í Istanbúl og öllum borgum Tyrklands.
Jamm, enginn vafi leikur á hvar hægt er að sóla hvern kima líkamans eins lengi og fólk lystir erlendis án þess að það minnki nein ósköp í buddunni. Það er í Tyrklandi en síðustu misserin hefur gengi tyrknesku lírunnar fallið hraðar en æra Ólafs Ólafssonar í Samskipum.
Ein líra kostar, þegar þetta er skrifað, sextán íslenskar krónur. Sem þýðir til dæmis að kaffibolli í Istanbúl kostar Íslendinga þessa stundina heilar 48 krónur svona að meðaltali á kaffihúsi. Það um það bil 733 prósent lægra verð en við pungum út að meðaltali fyrir bolla hér heima. Fyrir þá sem falla frekar fyrir bjórnum en kaffinu þarf ekki að kafa djúpt til að eiga fyrir kollu á bar í Istanbúl þessi dægrin. Hún kostar svo mikið sem 180 til 240 krónur. Sem er svona 500 prósent lægra verð en hér heima svona utan happy hour.

Tyrkneska líran í frjálsu falli og við njótum góðs af.
Þetta gildir auðvitað líka á helstu ferðamannastöðum fyrir gistingu og af þreyingu af ýmsu tagi. Á besta stað í Istanbúl fæst nú fimm stjörnu gisting niður í tíu til tólf þúsund krónur á hótelvef okkar hér að neðan.
Á mannamáli hefur líran fallið um 400 prósent rúm frá árinu 2010 gagnvart íslenskri krónu, sem auðvitað hefur styrkst töluvert sjálf á þeim tíma. En þó aðeins sé litið eitt ár aftur í tímann er fall lírunnar samt sem áður 93 prósent á síðustu tólf mánuðum.
Sem auðvitað þýðir að krónan okkar, eða lírurnar sem við fáum fyrir krónurnar, kaupa 93 prósent meira í Tyrklandi nú en í júlí 2017.
Það munar um minna gott fólk. Svona hefnist Erdogan fyrir að ráða besta vininn í Seðlabankann og tengdasoninn í starf fjármálaráðherra. Og landsmenn engu nær því allir blaðamenn landsins eru bak við lás og slá.
Um að gera að nýta sér þetta en það liggur svo sem ekkert á. Líran á eftir að falla meira en þetta.







