Hörðustu aðdáendur Amy Winehouse sem drakk sig til dauða fyrir tveimur árum síðan ættu að rífa upp veskið og halda til London eigi síðar en í byrjun september. Gyðingasafnið þar í borg hefur nefninlega tímabundið sýningu á fjölda muna úr hennar eigu.
Sýningin hefur komið mönnum í opna skjöldu enda Winehouse afar lokuð alla tíð um sína persónulegu hagi en hún bjó og lést í íbúð sinni í Camden hverfinu í London í júní 2011 eftir að hafa bókstaflega drukkið sig dauða.
Gyðingasafnið í London, London Jewish Museum, er staðsett við Albertsstræti í borginni og opið alla daga nema mánudaga milli 10 og 17 nema á föstudögum þegar opið er til 14. Aðgangseyrir 1.300 krónur. Heimasíðan hér.
View Gyðingasafnið í London in a larger map







