Best er að gera allt með trukki að mati Morgunblaðsins. Aðra helgina í röð blása blaðamenn blaðsins í lúðra fyrir Icelandair og fjalla ítarlega um „hinn“ nýja áfangastað flugfélagsins. Fararheill telur eðlilegt að búast við sams konar úttekt næstu tvær vikurnar um áfangastaði Wow Air.
Um liðna helgi birtist úttekt um borgina Anchorage í Alaska í helgarblaði Morgunblaðsins og gott eitt um það að segja jafnvel þó hægt væri að eyða töluverðu púðri í hversu litlaus og hlutlæg sú úttekt var. Helgina áður var einnig ítarleg, en döpur, úttekt á St.Pétursborg, en þessar tvær borgir eru nýjustu áfangastaðir Icelandair.
Sem dæmi um miður góða blaðamennsku má nefna að blaðamaðurinn mælir sérstaklega með sömu veitingastöðum, hótelum og ferðaþjónustuaðilum í Anchorage og fréttateymið notaði á ferð sinni og var allt, samkvæmt heimildum Fararheill, að fullu í boði og ókeypis. Hvergi er það þó tiltekið í greininni og ekki í fyrsta skipti.
Það var þó ekki erindið við ykkur lesendur nú heldur hitt að nú þegar Mogginn hefur fjallað ítarlega um tvo nýja áfangastaði Icelandair væri eðlilegt og sanngjarnt að fjallað sé um tvo áfangastaði Wow Air næstu tvær vikurnar. En Mogginn er kannski ekki sérstaklega fyrir eðlilegt og sanngjarnt?
Ritstjórn bíður spennt.







