Stórborgin Barcelóna er góðu heilli í boði í beinu flugi héðan frá Íslandi með þremur flugfélögum þetta sumarið. Létt úttekt leiðir í ljós að Wow Air býður best í júlí en spænska flugfélagið Vueling hefur vinninginn í ágúst og september.
Kannað var verð á heimasíðum þessara fyrirtækja klukkan 16 þann 3. júní 2013 og verð Vueling færð yfir í íslenskar krónur miðað við miðgengi krónu gagnvart evru á þeirri stundu. Um er að ræða flug fram og aftur með sköttum og gjöldum.
Glöggt sést að þó komið sé fram í júní er enn hægt að komast í Spánarsól fyrir sæmilegan pening og lægsta verð Vueling á rúmar 38 þúsund í ágúst og september er ekkert minna en frábært. Þessi fargjöld skal grípa samstundis því eins og raunin er á lægstu fargjöldum Wow Air er takmarkað magn af sætum og fáar dagsetningar í boði.
Hafa skal í huga að greitt er aukalega fyrir farangur hjá bæði Vueling og Wow en hjá Icelandair er taska innifalin í verði.







