Ársreikningur eignarhaldsfélagsins Wow Air ehf. liggur ekki fyrir enn sem komið er en ýmsir hafa velt fyrir sér frá því félagið tók til starfa hversu vel gengi í raun og veru.
Forstjórinn, Skúli Mogensen, sagði í afmælisveislu fyrirtækisins í síðustu viku að á fyrsta starfsári Wow Air hefði félagið flutt rúmlega 380 þúsund farþega til og frá landinu. Engin ástæða til að draga það í efa en tölurnar ná yfir heilt ár frá því Wow fór fyrst í loftið fyrir réttu ári síðan fram til maíloka þetta árið.
Þar sem farþegafjöldinn liggur fyrir má leika sér með nokkrar tölur og fá grófa hugmynd um gengi Wow til gamans og fróðleiks. Kostnaður fyrirtækisins liggur auðvitað ekki ljós fyrir en það er hægt að leika með tölur út frá því verði sem félagið hefur selt ferðir sínar á.
Hafi 380 þúsund manns flogið og hver og einn greitt að meðaltali fyrir 25 þúsund krónur fyrir þýðir það að Wow hefur velt 9,5 miljörðum króna. Það er vitaskuld mikil einföldun en Fararheill skýtur á að upphæðin sé kannski ekki svo fráleit að meðaltali. Auðvitað hefur einhver fjöldi þessara ferðast með Wow Ferðum og greitt þá meira fyrir en Wow hefur líka reglulega selt fjölda sæta á lágmarksverði líka svo við höldum að þetta sé nú ekki alveg út í móa eða hróa.
Stærsti kostnaðurinn liggur í leiguvélasamningi og launum en annars er kostnaðurinn ekki svo ýkja mikill. Rekstur ferðaskrifstofunnar Wow Ferðir hefur gengið mjög bærilega eftir því sem Fararheill kemst næst og kostnaður vegna hennar ætti að jafnast nokkuð út. Þá hefur Wow þurft að greiða skilding fyrir að setja upp þjónustu alla í Leifsstöð en sá kostnaður kemur aðeins einu sinni.
Kaup Wow á hluta Iceland Express er auðvitað spurning en þar sem Pálmi Haraldsson var komin á ystu nöf að fara í þrot með Iceland Express seint í vetur verður að telja ólíklegt annað en Skúli hafi fengið hlutann fyrir lítið og kannski ekkert.
Ítrekað skal að enginn í ritstjórn Fararheill kann staf í rekstrarfræðum eða viðskiptafræði. Þessar vangaveltur aðeins til gamans og kunna að vera fjarri lagi.







