Svo virðist sem margrómuð tækniþjónusta Icelandair sé ekki svo ýkja rómuð eftir allt saman. Ný skýrsla Rannsóknarnefndar flugslysa vegna alvarlegs óhapps í vél Icelandair árið 2009 leiðir í ljós að viðhaldi var ekki sinnt sem skyldi og er áfellisdómur yfir tækniþjónustu flugfélagsins.

Fjórum árum eftir að reykur tók að fylla bæði flugstjórnarklefa og farþegarými vélar Icelandair á leið frá París til Íslands hafa flugslysamenn loks hamrað saman eina skýrslu vegna málsins. Ekki þeim að kenna reyndar enda fáliðaðir en engu að síður alvarlegt hversu langan tíma tekur að birta skýrslu um alvarlegt flugatvik þar sem allt gekk vel að lokum. Hversu lengi verða menn að rannsaka þegar vél ferst með manni og mús?

Niðurstaða eftirlitsmanna er gróflega á þá leið að viðhaldssvið, tækniþjónusta, Icelandair hafi ekki sinnt sínu starfi en eldsneytisdæla í öðrum hreyfli vélarinnar var komin fleiri þúsund flugstundir framyfir tilskildan skoðunartíma.

Sem er grafalvarlegt mál þegar litið er til þess að vélar Icelandair eru með þeim elstu í bransanum.

Skýrsla Rannsóknarnefndar flugslysa í heild sinni.