Ritstjórn Fararheill tekur öll ofan hattinn, meira að segja hattlausar stelpurnar, fyrir öllum þeim einstaklingum sem reyna að gera ferðalög einfaldari og ódýrari fyrir bláókunnugt fólk. Það krefst ákveðinnar fórnfýsi og oftar en ekki koma viðkomandi út í mínus fyrir að reyna að gera gott.
Þó allt of lítið fari fyrir þá hefur Margrét Gunnarsdóttir rekið vefinn Ferðalangur.net um langa hríð þar sem hún veitir öllum er vilja ráðleggingar um hitt og þetta tengt ferðalögum og gerir það að mestu af góðsemi. Og hún veit hvað hún syngur því Margrét hefur reynslu af fararstjórn erlendis til margra ára.
Hún hefur í nafni Ferðalangs gefið út þrjár rafbækur sem hægt er að kaupa á vefnum sem gefa öllum ýmis góð ráð hvernig ferðast eigi án þess að greiða of mikið fyrir, hvað nákvæmlega sé þess virði að sjá og skoða auk fjölmargs annars sem meira að segja þokkalega ferðareynd ritstjórn Fararheill hafði enga hugmynd um. Ef við værum ekki svona hrifin af hvað hún er að gera þá væri Ferðalangur okkar mesti keppinautur 😉
Við hvetjum fólk til að kynna sér hvað Ferðalangur hefur upp á að bjóða og hver vill ekki spara sér þúsundir og jafnvel tugþúsundir króna á ferðalögum?







