„Það er ekki dýrt. Ef þróunin er skoðuð þá er hægt að segja að sólarlendaferðir hafa lækkað. Þær voru miklu dýrari árið 1974 þegar ég var að byrja. Þá kostaði það liggur við mörg mánaðarlaun að komast til útlanda.“

Ofangreint er haft eftir sölustjóra ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn á Pressunni fyrir sólarhring en þar hafnar Steinunn Tryggvadóttir þeim aðdróttunum að það sé dýrt að ferðast til útlanda.

Fararheill man vart eftir verri rökum en þetta og kannski útskýrir verðlag hjá Úrval Útsýn ef helsta viðmiðunarárið er 1974. Það er alveg rétt hjá Steinunni að þá voru ferðalög afar kostnaðarsöm og vart á færi nema vel tengdra áhrifamanna en síðan eru líka rúm 35 ár síðan.

Umræddur blaðamaður hefði getað skotið þessa röksemdafærslu á kaf með því að forvitnast um prósentuhækkanir á ferðum ÚÚ síðustu fimm árin eða svo en gerði ekki. Þá hefði orðið fátt um svör.